Lausnir og samvinna skila árangri

Nýfallinn dómur Hæstaréttar nr. 600/2011, er, og mun verða túlkaður með mismunandi hætti svo sem ljós má vera af umræðu liðinna daga. Þó Samtök lánþega telji niðurstöðuna skýra og fordæmi dómsins skýrt, þá er augljóst að fjármálafyrirtækin og sumir stjórnmála- og ráðamenn, deila ekki þeirri skoðun.

Samtökum lánþega er því ljóst mikilvægi þess að allir aðilar máls, setjist niður og finni ásættanlega lausn þar til dómstólar kveða upp úrskurði eða dóma um þau atriði sem ágreiningur verður áfram gerður um. Það er engum til gagns að viðhalda ónauðsynlegri óvissu sem slíku getur fylgt. Einstaklingar og fjölskyldur eru í uppnámi, atvinnurekendur geta ekki sett fram rekstraráætlanir og fjármálastofnanir þekkja ekki virði lánasafna sinna. Þetta er auðvitað bagalegt og öllum ágreiningi um túlkun og fordæmi þarf því að eyða sem fyrst.

En dómsmál taka tíma, og þó einhver séu þegar í gangi, þá er alls óvíst að þau skeri úr um helstu ágreiningsefni með óyggjandi hætti. Það geta því allt eins liðið margir mánuðir, jafnvel ár, áður en vissa er um endanlega niðurstöðu, verði ekki gripið til markvissra aðgerða. Því er nauðsynlegt að vinna að leið sem fær er öllum aðilum fram að þeim tíma er ágreiningi verður eytt fyrir fullt og allt. Samtök lánþega, atvinnurekenda og heimila þurfa að setjast niður ásamt Samtökum fjármálafyrirtækja og stjórnvöldum.

Samtök lánþega telja nauðsynlegt að hefjast þegar handa við þetta verk og að ekki eigi að gefa meira en 5 til 10 daga til að vinna að og útfæra ásættanlega bráðabirgðalausn á innheimtu og uppgjöri. Mánaðarmót nálgast og þeim fylgja greiðsluseðlar. Því er nauðsynlegt að bregðast við svo tryggt sé að fjármunir glatist ekki, enda óvíst um rektrarhæfi einhverra fjármálafyrirtækjanna til framtíðar. Tap af því tagi gæti leitt til beinnar skaðabótaskyldu ríkissjóðs vegna aðgæsluleysis eftirlitsstofnana. Lánþegar og fjármálafyrirtæki þurfa jafnframt að sameinast um mál sem reka má fyrir dómstólum í flýtimeðferð svo fækka megi ágreiningsefnum með markvissum hætti. Við þurfum að sætta andstæð sjónarmið og við þurfum öll að leggjast á árarnar, og sjá til þess að hér sé hægt að hefja og styðja við þá uppbyggingu sem nauðsynleg er.

Samtök lánþega lýsa sig reiðubúin að koma að slíkri vinnu. Við teljum að málefnaleg afstaða samtakanna sé líkleg til árangurs, sátta og sanngjarnra lausna. Samtök lánþega telja öruggt, að komi aðilar að borðinu með opnum hug, þá finnist leið sem allir geta lifað við.

Ágreiningur og þras sem nú er uppi í umræðunni, skilar engu. Tölum okkur markvisst til framtíðar og lausna fremur en að halda áfram að rífast til fátæktar.

 

Með vinsemd,

Guðmundur Andri Skúlason

Formaður

Samtök lánþega

2 Comments
  1. Sæll Guðmundur,
    Hvað finnst ykkur hjá Samtökum Lánþega um þessa túlkun sem hefur verið fjallað um nýlega, þar sem sagt er að hafi lán verið í vanskilum á nýfallinn dómur ekki við um þau lán?

    Er það þá svo að hafi fólk segjum t.d. sleppt því að greiða í einhverja mánuði þá eigi það ekki rétt á leiðréttingu ?

  2. Sæll Pétur,
    Það er alls ekki svo að þeir sem voru í vanskilum í einhvern tíma, njóti ekki fordæmis dómsins um afturvirka vexti greiddra gjalddaga. Miðað við túlkun LEX á dómnum þá eru þeir að gera greinarmun á annars vegar greiddum gjalddögum og hins vegar ógreiddum.
    Þetta er í samræmi við þá túlkun sem við settum fram fyrir ári síðan, það er, að ekki verði hróflað við vaxtastigi þegar greiddra gjalddaga en lægstu óverðtryggðu vextir SÍ tækju við eftir síðasta greidda gjalddaga.
    Það er í raun ekki óeðlilegt, þó það sé umdeilanlegt.
    1. Við sem ekki höfum greitt í t.a.m. eitt ár, höfum notið þeirra fjármuna sem áttu að fara í greiðslur. Annað hvort með ávöxtun í banka eða með afnotum af vöru sem keypt hefur verið fyrir andvirðið.
    2. Þeir sem greiddu hafa á móti ekki notið þeirra fjármuna, hvorki ávöxtun þeirra eða með afnotum af vöru sem keypt er í staðin.
    Það er mikilvægt að við gerum okkur grein fyrir þessum mismun og því, að greiddir gjalddagar eru greiddir, og þeim verður ekki breytt.

Leave a Reply

Innskráning

Síðustu aðgerðir

Heimilisfang

    Samtök lánþega
    Skipholt 50d, 105 Reykjavík
    ICELAND

    Sími: (+354) 512-1660
    Gsm: (+354) 615-1522
    Veffang: http://lanthegar.is
    Netfang: info@lanthegar.is
s2Member®