Í gær, 23. febrúar, stöðvaði sýslumaðurinn í Reykjavík nauðungarsölubeiðni eftir að Samtök lánþega settu fram ítarlega greinargerð við fyrirtöku málsins, hvar krafist var tafarlausrar stöðvunar á uppboðsferlinu. Var þessi nauðungarsölubeiðni ein af fjölmörgum sem borist hafa lánþegum innan vébanda Samtaka lánþega að undanförnu en Samtök lánþega hafa undanfarnar vikur, í samstarfi við Þórð Heimi Sveinsson hdl., unnið að greinargerð til varnar þessum uppboðsbeiðnum. Hefur markmið Samtaka lánþega með þessum aðgerðum fyrst og fremst verið að vernda hag félagsmanna, en jafnframt hefur vinnan miðað að undirbúningi máls sem í framhaldinu verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Undirbúningur hefur því tekið mið af því að svarað verði spurningum sem ágreiningur er um, varðandi túlkun á vaxtaviðmiði áður gengistryggðra lána. Hefur nú komið í ljós, að þar er helst um að ræða þær spurningar sem enn er ágreiningur um eftir nýfallinn vaxtadóm Hæstaréttar.
Samtök lánþega hafa óskað þess að framangreint mál verði gert að fordæmi fyrir önnur sambærileg mál svo tryggja megi skjóta úrlausn en uppboðsbeiðandi, sem í þessu tilfelli var Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., á eftir að staðfesta að öllum uppboðsbeiðnum bankans, í sambærilegum málum, verði frestað þar til leyst hefur verið úr ágreiningi þessa máls. Þangað til sú staðfesting liggur fyrir, þá munu Samtök lánþega aðstoða félagsmenn við að krefjast stöðvunar á grundvelli ákvörðunar sýslumanns frá í gær.
Bankinn hefur þó staðfest, að afturkallaðar verði allar beiðnir um skráningu á vanskilaskrá Lánstrausts vegna þessara mála. Samtök lánþega mæla þó með að lánþegar fái staðfesta afturköllun með því að hafa samband við CreditInfo.
Á meðan óvissa ríkir um réttmæti innheimtu og uppgjörs, þá hvetjum við lánþega til að fara varlega í greiðslum á heimsendum greiðsluseðlum, en hafa ber í huga að mikil óvissa ríkir um rekstrarhæfi margra fjármálastofnana til framtíðar.
Samtök lánþega eru með þessum aðgerðum, trú markmiði sínu, sem er að virkja fjöldann til að leysa úr ágreiningsefnum eftir þeim leikreglum sem samfélagið setur okkur.
Í krafti fjöldans getum við allt

Til lukku með framganginn í þessu máli og gangi ykkur áfram vel í ykkar þrotlausu vinnu í þágu bættari samskipta milli skuldareigenda við skuldara.