Það hefst, fyrir rest.

Þann 12. nóvember benti ég fjölmiðlum á þá fáránlegu staðreynd að stjórn langstærsta kröfuhafans í þrotabú Frjálsa fjárfestingabankans væri skipuð sömu aðilum og skipa slitastjórnina sjálfa.

Enginn fjallaði um það þá.

Á kröfuhafafundi þann 19. nóvember setti ég fram fyrirspurn til slitastjórnar um hvort slitastjórn teldi eðlilegt að þeir sem tækju afstöðu til krafna væru þeir sömu og lýstu um 99% af kröfunum í þrotabúið.

Það var hvorki sett í fundargerð né birt á vef Frjálsa fjárfestingabankans svo sem fundarstjóri, Jóhann Pétursson hafði lofað.

Þann 18. janúar lagði ég fram kæru á hendur slitastjórn SPRON og Frjálsa fjárfestingabankans hvar ég krafðist þess að þer vikju þegar í stað sökum vanhæfis.

Ekkert var um það fjallað í fjölmiðlum þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar.

Þann 27. janúar var tekin fyrir krafa mín um frávikningu slitastjórnar og var þess þar krafist af slitastjórn að kröfunni yrði vísað frá þar sem ég væri ekki aðili að málinu.

Dómari féllst á að ég væri ekki aðili að málinu, ennþá, og taldi því rétt að fresta málinu frekar en að vísa því frá.

Enn var ekkert um það fjallað í fjölmiðlum.

Og af því að nú er ég farinn að hljóma eins og paranoiaður forsetaframbjóðandi þá er ég að hugsa um að segjast skilja þetta.

Fjölmiðlar hafa mikið að gera.

1 Comment
  1. Langar að varpa fram spurningu! Hver eru réttindi og skyldur skráðra eigenda að eign? Nú eru það eigendur leiguíbúða t.d. sem þurfa að greiða öll gjöld af íbúðum sínum en fjármagnsfyrirtæki eins og Lýsing getur skráð sig sem eigandi ökutækis en látið umráðamenn greiða öll gjöld! Geta þá leiguíbúða eigendur fyrrt sig ábyrgð á þessum greiðslum og hellt þeim yfir á leigjendur? Það hljóta gilda lög um eigendaskyldur svo nú er kominn tími til að láta reyna á þau! Hef aldrei skilið hvernig þessi fyrirtæki geta skráð bifreið sem sína eign en samt finnst ekkert um það í eignasafni fyrirtækisins! Hvurslags glæpasamfélag er þetta orðið?

Leave a Reply

Innskráning

Síðustu aðgerðir

Heimilisfang

    Samtök lánþega
    Skipholt 50d, 105 Reykjavík
    ICELAND

    Sími: (+354) 512-1660
    Gsm: (+354) 615-1522
    Veffang: http://lanthegar.is
    Netfang: info@lanthegar.is
s2Member®