Ég hef sett upp síðu hvar er að finna bréf og yfirlýsingar sem nota má til hliðsjónar ef lánþegar vilja sækja rétt sinn gagnvart fjármálafyrirtækjum.
Ég legg áherslu á að aðilar kynni sér vel innihald þeirra yfirlýsinga og bréfa sem hér eru sett fram. Öll þessi bréf, utan allsherjaryfirlýsing vegna SP, eru samin í tengslum við viðskipti mín og konu minnar við fjármálafyrirtækin Lýsingu hf. og Frjálsa fjárfestingabankans. Aðilar sem ætla að nýta sér þessi bréf verða að athuga að ekki er víst að öll þau atriði sem fram eru sett í ofantöldum bréfum eigi við um viðskipti viðkomandi.
Samtök lánþega geta ekki borið ábyrgð á innihaldi þeirra bréfa sem byggð eru á ofangreindu, en eru þó tilbúin að leggja nafn sitt við þau bréf sem hér eru sett fram. Einnig eru Samtök lánþega boðin og búin að aðstoða hverja þá sem telja sig þurfa aðstoð við að setja saman kröfu á hendur lánadrottni sínum.
Þó verður að hafa í huga, að hér eru bara tvær hendur í sjálfboðastarfi og því oft erfitt að svara beiðnum í rjúkandi hvelli. En ég geri hvað ég get.
Minni að lokum á að starf þetta er unnið af hugsjón og á sér grunn í þeirri von að réttlætið sigri að lokum. Kenniorð okkar eru:
Í krafti fjöldans getum við allt!
Guðmundur Andri Skúlason
Samtök lánþega
Kt. 411009-2380
Reikningsnúmer – 701-05-301446.
Hér má svo nálgast síðuna
Takk Guðmundur Andri og konan þín