Um okkur

Samtök lánþega hafa verið stofnuð og er markmið samtakanna að takast á við þær óréttlátu byrðar sem lánþegar og heimili landsins eiga að bera vegna efnahagshrunsins og þess forsendubrests sem þá varð til.

Samtök lánþega telja að markmiðum verði best náð með því að sækja fram á lagalegum grundvelli og setjast að samningaborði og ræða þær raunhæfu lausnir sem á borðinu eru.

Samtök lánþega hafa þannig staðið að fjölmörgum dómsmálum og þannig náð fram niðurstöðu í álitaefnum sem ótvírætt hafa bætt stöðu lánþega. Jafnframt hafa Samtök lánþega staðið að ráðgjöf og upplýsingamiðlun til hagsmunaaðila.

Samtök lánþega beita sér til áhrifa með málefnalegri framsetningu krafna, viðræðum við hagsmunaaðila og gagnrýnu aðhaldi við lagasetningar stjórnvalda.

Samtök lánþega leggja áherslu á samstöðu félagsmanna og að allir þeir sem standi að samtökunum geri það af fúsum og frjálsum vilja.

Samtök lánþega

Skipholt 50d – IS-105 Reykjavík
615 1522 – 512 1660
lanthegar@lanthegar.is

http://lanthegar.is

Kennitala: 411009-2380


Innskráning

Síðustu aðgerðir

Heimilisfang

    Samtök lánþega
    Skipholt 50d, 105 Reykjavík
    ICELAND

    Sími: (+354) 512-1660
    Gsm: (+354) 615-1522
    Veffang: http://lanthegar.is
    Netfang: info@lanthegar.is
s2Member®