Sagan

Upphaf samtakanna má rekja til þeirrar tilkynningar sem ég sendi frá mér hvar ég óskaði eftir samstöðu meðal lánþega Frjálsa í þeim tilgangi að semja beint við kröfuhafa bankans um uppgjör skulda.
http://lanthegar.is/?p=75
Síðan vatt þetta upp á sig og innan skamms var komin á fót stór hópur fólks innan Frjálsa sem vildi taka þátt í þessu og þá áttaði ég mig á því hve miklu er hægt að áorka með því að skapa samstöðu með sameiginlegum hagsmunum fólks.
http://lanthegar.is/?p=80
Samtökin eru síðan formlega stofnuð að afloknum fundi sem haldinn var í húsi Orkustofnunar þann 8. september 2009. sbr. ályktun fundar hvar mættir voru á annað hundrað manns.
http://lanthegar.is/?p=132
Strax var ákveðið á þessum fundi að ég sem stofnandi ætti að sjá um alla framkvæmd á félaginu, enda væri tilgangur félagsins fyrst og fremst að virkja fjöldann til samstöðu. Engin kvöð var um greiðslu félagsgjalda og því ekki gert ráð fyrir sérstökum fjárhag. Öll yfirbygging var því fremur óformleg og var það ákveðið í þeim tilgangi að auðveldara væri að koma í verk því sem koma þarf í verk. Stofnendur voru skráðir Guðmundur Andri Skúlason og Helga Leifsdóttir og í núverandi stjórn situr auk þeirra tveggja, Sigrún Hafsteinsdóttir.
Til að gera langa sögu stutta þá kom fljótt í ljós ósk frá fjölda aðila um aðstoð vegna mála sem voru ættuð frá öðrum fjármálastofnunum og var því ákveðið að breyta samtökunum úr Hagsmunasamtökum lánþega Frjálsa fjárfestingabankans í Samtök lánþega.
Helstu verkefni samtakanna voru fyrst og fremst að standa fyrir samstöðu meðal lánþega gagnvart þessum fjármálafyrirtækjum.
Var samstöðunni og áhyggjum lánþega svo komið á framfæri m.a. til ráðamanna. sbr.
Opið bréf til viðskiptaráðherra
Fundur með viðskiptaráðherra
Fundur með Slitastjórn SPRON
Opið bréf til félagsmálaráðherra
Bréf til dómsmálaráðherra
Þessi samstaða hafði áhrif og fjölgaði þátttakendum jafnt og þétt og í lok september 2009 höfðum við safnað lánþegum hjá Frjálsa sem höfðu yfir að ráða lánasafni að verðmæti milli 13 og 16 milljarðar króna, sbr..
http://lanthegar.is/?p=237
Að afloknum fundi með Slitastjórn SPRON og Frjálsa (http://lanthegar.is/?p=247) var ákveðið að boða til greiðsluverkfalls (http://lanthegar.is/?p=250) og má sjá hver þátttaka var sbr. (http://lanthegar.is/?p=267)
Á afmælisdegi hrunsins þann 6. október 2009 var síðan merkilegur fundur í höfuðstöðvum Kaupþings þar sem fram kom að bankarnir vildu leiðréttingu en stjórnvöld ekki. (http://lanthegar.is/?p=322)
Eftir að viðbrögð stjórnvalda höfðu verið könnuð eftir þessa uppgötvun var steininum velt og fullur kraftur settur í slaginn. (http://lanthegar.is/?p=330)
Var þegar stokkið til og lánþegum Frjálsa hjálpað við að gera kröfur í þrotabúið, (http://lanthegar.is/?p=369) enda kröfulýsingarfrestur að líða og okkur innan samtakanna ljóst eftir dálitla skoðun að lánin gátu aldrei hækkað (http://lanthegar.is/?p=340) og vorum við fyrst til að benda á það.
Öll lögfræðiaðstoð og framkvæmd við þessar kröfulýsingar var greidd af samtökunum og var það í fyrsta skipti sem kallað var eftir einhverjum fjármunum til samtakanna, en í upphafi var þessi kostnaður greiddur úr vasa Guðmundar Andra. Niðurstaða þessa var að yfir 100 lánþegar gerðu kröfu í þrotabúið (http://lanthegar.is/?p=430)
Í framhaldinu og í kjölfar þess að ljóst var að stjórnvöld vildu ekkert gera (http://lanthegar.is/?p=337) þá var sett fram kröfugerð lánþega og hún send á alla þingmenn, ráðherra sem og forstjóra helstu fjármálastofnanna, (http://lanthegar.is/?p=379). Rataði sú kröfugerð og þær aðvaranir sem þar voru settar fram inn í sali Alþingis í formi fyrirspurnar til viðskiptaráðherra. (http://www.althingi.is/altext/raeda/138/rad20091118T123057.html)
Í framhaldinu voru settar í gang aðgerðir til að aðstoða lánþega að verjast ótrúlega hörðum innheimtuaðgerðum fjármálafyrirtækjanna.
http://lanthegar.is/?p=659
http://lanthegar.is/?p=410
http://lanthegar.is/?p=495
Sett var fram krafa fyrir Héraðsdómi um frávikningu slitastjórnar Frjálsa vegna vanhæfis (http://lanthegar.is/?p=531) sem var tekin fyrir og afgreidd af dómstólum eins og önnur mál er varða fjármálastofnanir, en Jón Finnbjörnsson héraðsdómari sagði að við værum ekki aðilar máls og því kæmi okkur ekki við þó slitastjórn væri skipuð óhæfum einstaklingum.
Síðan hafa hver málin rekið önnur, s.s. kærur til FME um lögmæti samninga og síðan svör og upplýsingagjöf varðandi þau mál sem í gangi voru, (http://lanthegar.is/?p=807) og upplýsingagjöf til fjármálafyrirtækja, (http://lanthegar.is/?p=812).
Samtökin hafa einnig reynt eftir mætti að koma fram sem aðhald á aðgerðir fjármálastofnana og leitað svara við vafasömum gjörningum þeirra (http://lanthegar.is/?p=850) og einnig hafa yfirlýsingarnar haft það markmið að byggja undir komandi málsóknir (http://lanthegar.is/?p=878) komi til þeirra.
Samtökin hafa þar að auki gengist í ábyrgð fyrir kostnaði vegna tveggja mála sem nú eru rekin fyrir dómstólum. Samtökin tryggðu sér einnig aðgang að skrifstofu og buðu þar upp á viðtalstíma og aðra þjónustu.
Vegna þeirra tveggja mála sem Samtökin standa nú í fyrir hönd félagsmanna, þá er kostnaður við annað þeirra þegar kominn í tæplega kr. 1.700.000,-. Og hæstiréttur er eftir.
Og nú eru í farvatninu hópmálsóknir (http://lanthegar.is/?p=1294) og eru skráðir þátttakendur í því verkefni 860. (http://lanthegar.is/wp-content/uploads/2010/10/Screen-shot-2010-10-06-at-18.43.35-.png)
Þegar litið er til þessa kostnaðar, ásamt alls þess sem á vettvangi Samtakanna hefur verið framkvæmt, þá má heita furðulegt og jafnvel hálf ótrúlegt að heildarframlög til samtakanna á þessu ári sem þau hafa starfað eru rétt rúmlega 2 milljónir, eða nákvæmlega kr. 2.245.248,-
Ég veit ekki til þess að nokkur samtök, stofnun eða fyrirtæki hafi hingað til getað boðið upp á jafn mikið fyrir jafn lítið.
Talsmaður Samtakanna, sá sem þetta ritar, hefur jafnframt reynt hvað hann getur til að aðstoða lánþega og benda á leiðir til bættrar stöðu, óháð því hvort þeir eru félagsmenn eða ekki. Öll þessi vinna hefur farið fram án endurgjalds og hefur sá sem hingað til hefur af mörgum verið talinn eini vindbelgurinn í Samtökum lánþega verið sá sem sinnt hefur þessum störfum. Félagsmenn eru við síðustu samantekt rétt ríflega 3.000.

Innskráning

Síðustu aðgerðir

Heimilisfang

    Samtök lánþega
    Skipholt 50d, 105 Reykjavík
    ICELAND

    Sími: (+354) 512-1660
    Gsm: (+354) 615-1522
    Veffang: http://lanthegar.is
    Netfang: info@lanthegar.is
s2Member®