Hér má sjá lítinn hluta þess sem Samtök lánþega hafa framkvæmt frá stofnun þeirra, haustið 2009.
Samtökin stöðvuðu, með framlagningu ítarlegrar greinargerðar, nauðungarsölu eigna hjá Sýslumanninum í Reykjavík þann 23. febrúar 2012.
- Samtök lánþega áttu frumkvæði að kvörtun til ESA og kölluðu fólk til funda til að koma því máli í ferli.
- Samtökin stóðu að fjölda kröfugerða fyrir hönd lánþega, í þrotabú Frjálsa fjárfestingabankans, sem leiddi af sér nærri þreföldun á fjölda krafna í búið.
- Samtökin kröfðust þann 18. janúar 2010, frávikningar á Slitastjórn Frjálsa fjárfestingarbankans sökum skorts á hæfi, sbr. 13. kafla gjaldþrotalaga.
- Samtökin unnu í Hæstarétti mál 347/2010, sem varðaði heimild til vörslusviptinga og innsetningar.
- Samtökin unnu í Hæstarétti mál 603/2010, sem varðaði heimild til gengistryggingar og vaxtareiknings.
- Samtökin settu af stað kröfur um frestun greiðslna til Frjálsa fjárfestingabankans sem leiddu af sér svokallaða 5000 króna leið, en þá leið hafa flestar lánastofnanir áður gengistryggðra húsnæðislána nú tekið upp.
- Samtökin fengu staðfest í Hæstarétti skv. máli 454/2011, að eigandi hlutafélags sem hlunnfarið er af banka, er réttur aðili máls. Er slíkt fordæmi fyrir fjölda mála hvar hlutafélög hafa verið rekin í þrot á grundvelli ólögmætra lánasamninga, eða seld á grundvelli rangrar skuldastöðu.
- Samtökin settu af stað mál gegn Lýsingu hf. vegna ólögmætra endurútreikninga og heimildarlausrar verðtryggingar. Hefur Lýsing hf. í því máli endurgreitt lánþega skv. ítrustu kröfum á erlenda hluta lánsins og þannig viðurkennt túlkun Samtaka lánþega á endurútreikningi vaxta. Niðurstaða í verðtryggingarhluta býður dóms.
- Samtökin samþykktu að standa að og greiða málskostnað í máli 600/2011 færi svo að það mál tapaðist í Hæstarétti, en það mál skar úr um ólögmæti afturvirkra vaxtakrafna og var framhald máls 604/2010 sem rekið var samhliða máli samtakanna, 603/2010.
- Með samkomulagi Samtaka lánþega við banka og fjármálastofnanir eftir dóm Hæstaréttar í máli 600/2011, voru vörslusviptingar vegna gengistryggðra lánasamninga stöðvaðar.
- Með samkomulagi samtakanna við banka og fjármálastofnanir voru innsetningarmál sem þegar voru rekin fyrir dómstólum, stöðvuð eða dregin til baka eftir dóm Hæstaréttar í máli 600/2011.
- Samtökin stöðvuðu, með framlagningu ítarlegrar greinargerðar, nauðungarsölu eigna hjá Sýslumanninum í Reykjavík þann 23. febrúar 2012. Í framhaldinu var gengið til þess að stöðva nauðungarsölur annarra sýslumannsembætta.
- Með samkomulagi Samtaka lánþega við Frjálsa fjárfestingabankann voru allar nauðungarsölubeiðnir sem byggðust á umdeilanlegum eftirstöðvum gengistryggðra lána, stöðvaðar eða afturkallaðar.
- Samtökin fengu afturkallaðar beiðnir um skráningu á vanskilaskrá, í samstarfi við fjármálastofnanir og Lánstraust.
- Samtök lánþega hafa nú, enn og aftur, sett sig í samband við allar helstu fjármálastofnanir landsins, ásamt Samtökum fjármálafyrirtækja og embætti Umboðsmanns skuldara, með það að markmiði að kalla eftir lausnum.
- Samtökin hafa í kjölfarið sett í gang vinnu við undirbúning dómsmála sem skorið geta úr um ágreiningsefni sem út af standa eftir dóm 600/2011. Þau mál eru unnin í samstarfi við viðkomandi fjármálastofnanir svo hægt sé að flýta niðurstöðu sem kostur er.
—
Fyrir utan þessar beinu aðgerðir sem skilað hafa sér í áþreyfanlegum niðurstöðum, þá hafa Samtök lánþega aðstoðað fjölda lánþega við að verja réttarstöðu sína.
Samtökin hafa þannig aðstoðað lánþega við að endurheimta verðmæti vegna uppgjörsmála. Skrifað bréf fyrir lánþega til að verjast innheimtuaðgerðum. Útvegað aðstoð lögfræðinga ef á hefur þurft að halda og staðið straum af kostnaði teljist úrlausn ágreinings fordæmisgefandi. Samtökin hafa starfrækt skrifstofu og haldið úti öflugri heimasíðu. Samtökin hafa haldið fjölmenna fundi og gert það sem lítil samtök geta til að upplýsa fjölmiðla og alþjóð um stöðu mála. Og síðast en ekki síst, þá hafa samtökin eftir megni verið til staðar og veitt lánþegum í vanda ráð, þegar öll sund hafa virst lokuð.
Við höfum gert, og við höfum framkvæmt.
Saman erum við Samtök lánþega og þetta er okkar árangur.