Við bjóðum upp á margvíslega þjónustu við félagsmenn okkar, sem og aðra lánþega. Allt frá því að aðstoða við kröfugerðir og mótbárur til þess að endurreikna áður gengistryggð lán.
Því miður sjáum við okkur ekki fært að veita þessa þjónustu endurgjaldslaust og höfum við því sett fram áskriftarleiðir sem vonandi henta sem flestum.
Mismunandi þarfir kalla á mismunandi þjónustu og því bjóðum við upp á þrjár mismunandi leiðir fyrir félagsmenn okkar.
Okkar leiðir eru; Okkar – 1, Okkar – 2 og Okkar – 3. – Eiginlega eins einfalt og hægt er að hafa það.
Allir skráðir félagsmenn njóta afsláttarkjara og allrar venjubundinnar þjónustu, svo sem almennrar ráðgjafar í síma, aðstoð við kröfugerðir og val á greiðsluerfiðleikaúrræðum. Sé þörfin hins vegar umfram venjubundna þjónustu, svo sem aðstoð við framkvæmd greiðsluerfiðleikaúrræða eða endurútreikningur lána, þá bjóðum við upp á Okkar – 2 og Okkar – 3.
Smærri fyrirtæki og atvinnurekendur geta að sjálfsögðu gerst félagar í Samtökum lánþega. Miðast mánaðargjald þá við Okkar – 3 og aðstoð er veitt með 25% afslætti frá almennri verðskrá.
Okkar leiðir
Okkar – 1
kr. 375,-/mán
- Aðstoð við kröfugerðir og mótbárur.
- Aðstoð við val á greiðsluerfiðleikaúrræðum.
- Ráðleggingar í greiðsluerfiðleikum.
Aðstoð við framkvæmd greiðsluerfiðleikaúrræða.Aðstoð við lánatökur og endurfjármögnun.Aðstoð við uppgreiðslu lána.Aðstoð við endurútreikning eftirstöðva.Aðstoð í ágreiningsmálum.
Okkar – 2
kr. 735,-/mán
- Aðstoð við kröfugerðir og mótbárur.
- Aðstoð við val á greiðsluerfiðleikaúrræðum.
- Ráðleggingar í greiðsluerfiðleikum.
- Aðstoð við framkvæmd greiðsluerfiðleikaúrræða.
- Aðstoð við lánatökur og endurfjármögnun.
- Aðstoð við uppgreiðslu lána.
Aðstoð við endurútreikning eftirstöðva.Aðstoð í ágreiningsmálum.
Okkar – 3
kr. 1.495,-/mán
- Aðstoð við kröfugerðir og mótbárur.
- Aðstoð við val á greiðsluerfiðleikaúrræðum.
- Ráðleggingar í greiðsluerfiðleikum.
- Aðstoð við framkvæmd greiðsluerfiðleikaúrræða.
- Aðstoð við lánatökur og endurfjármögnun.
- Aðstoð við uppgreiðslu lána.
- Aðstoð við endurútreikning eftirstöðva.
- Aðstoð í ágreiningsmálum.
Almenn verð
Hver og einn getur nýtt sér þjónustu Samtaka lánþega, en séu menn ekki skráðir félagar, gildir eftirfarandi verðskrá.
| Þjónusta | Einingar | Verð | |
|---|---|---|---|
| Kröfubréf og mótbárur | @ hvert bréf | kr. 4.850,- | |
| Almenn bréf og skuldskeytingaskjöl | @ hvert skjal | kr. 9.850,- | |
| Fundur til ráðgjafar | @ hver fundur | kr. 7.610,- | |
| Ráðgjöf | @ hver klst. | kr. 7.610,- | |
| Uppgreiðsluþjónusta | @ hver mánuður | kr. 610,- | |
| Endurútreikningur húsnæðislána | @ hvert lán | kr. 28.050,- | |
| Endurútreikningur kaupleigusamninga | @ hvert lán | kr. 28.050,- | |
| Endurútreikningur fjármögnunarleigusamninga | @ hvert lán | kr. 32.250,- | |
| Endurútreikningur fyrirtækjalána * | @ hver liðinn gjalddagi | kr. 680,- | |
| Lögfræðiaðstoð | @ hver klst. | kr. 22.950,- | |
| *Gerður er samningur við hvert lán sem reiknað er. | |||
Okkar ávinningur
Sem félagsmaður nýtur þú þess að vera þátttakandi í góðu og árangursríku starfi, og þú nýtur jafnframt margvíslegra fríðinda.
Félagsmenn geta sótt sér endurgjaldslausa ráðgjöf um fjárhagsleg málefni og lagaleg álitamál varðandi fjármál. Samtökin aðstoða einnig félagsmenn í ágreiningsmálum við fjármálastofnanir og hið opinbera.
Okkar vinna, allra hagur.
Aðstoð við kröfugerðir og mótbárur
Aðstoð við val á greiðsluerfiðleikaúrræðum
Ráðleggingar í greiðsluerfiðleikum
Aðstoð við framkvæmd greiðsluerfiðleikaúrræða
Aðstoð við lánatökur og endurfjármögnun
Aðstoð við uppgreiðslu lána
Aðstoð við endurútreikning eftirstöðva
Lán eru endurreiknuð miðað við samningsvexti frá lántökudegi fram að síðasta greidda gjalddaga. Hafi lán verið dæmd ólögmæt, þá er reiknað frá dómsuppkvaðningu, eða gildistöku laga nr. 151/2010, eftir því hvort kom síðar til.
Miðað er við greiðslusögu lána og þar sem vextir eru breytilegir, þá miðast vaxtaútreikningur við þann dag sem greiðsla átti sér stað.
Við endurútreikning lána miðað við vexti Seðlabanka Íslands, þá eru vextir færðir á höfuðstól á 12 mánaða fresti í samræmi við lagafyrirmæli.
Aðstoð í ágreiningsmálum
Félagsaðild
Við aðild að Okkar 2 og Okkar 3, er greitt skráningargjald sem innheimt er við upphaf félagsaðildar. Skráningargjald í Okkar 2 er kr. 8.650,- en við Okkar 3 er skráningargjald kr. 12.110,-.
Skráningargjald fyrirtækja er kr. 25.510,-.