Skilmálar
Með því að fylla út og samþykkja skráningu hér að ofan, þá lýsir þátttakandi stuðningi við yfirstandandi málsókn Hafdísar Unu Bolladóttur gegn Lýsingu hf. Jafnframt þá skuldbindur þátttakandi sig til að greiða sem nemur jafnvirði einnar upphaflegrar mánaðargreiðslu lánasamnings þátttakanda til Samtaka lánþega og leggja þar með sitt að mörkum til að almennir borgarar þessa lands fái notið þess réttlætis sem þeim á að vera tryggt með Stjórnarskrá lýðveldisins. Jafnframt því þá njóta skráðir þátttakendur aðstoðar og fríðinda sem innifela eftirfarandi gjaldfrjálsa þjónustu:
- Skriflega aðstoð og ráðgjöf lögmanns varðandi þann lánasamning sem viðkomandi þátttakandi er skuldari að.
- Aðstoð við framsetningu á mótbárum vegna þess lánasamnings sem viðkomandi þátttakandi er skuldari að.
- Aðstoð við framsetningu og skrif á þeim bréfum og yfirlýsingum sem nauðsynleg eru til að tryggja réttarstöðu lánþega vegna þess lánasamnings sem þátttakandi er skuldari að.
- Önnur sú þjónusta sem Samtök lánþega, eða lögmaður á vegum samtakanna, kunna að samþykkja að veita án endurgjalds á síðari stigum máls.
Öll framangreind þjónusta er framkvæmd á vegum Samtaka lánþega, og eða lögmanns sem Samtök lánþega ráða til verksins.
Með þátttöku er þátttakandi að lýsa yfir stuðningi við málsóknina og nær skuldbinding hans eingöngu til þeirrar upphæðar sem miðast við jafnvirði upphaflegrar mánaðargreiðslu þess lánasamnings sem þátttakandi er skuldari að. Þátttakandi mun njóta þess fordæmis sem dómsniðurstaða téðs máls mun hafa í för með sér en er ekki með neinu móti, aðili að málaferlunum sem slíkum og ber því ekki ábyrgð á málarekstrinum á neinn hátt.
Um leið og þátttakandi lýsir með samþykki skilmála þessara, vilja til þátttöku verða sendir út greiðsluseðlar og/eða krafa í heimabanka viðkomandi sem byggir á því samþykki sem hér er gefið.
Fari svo að mál vinnist og málskostnaður verði greiddur Hafdísi Unu vegna téðs máls, þá verður þeirri upphæð, ásamt því sem afgangs kann að verða á málskostnaðarreikningi Samtaka lánþega, verða ráðstafað til þátttakenda í sama hlutfalli og inngreiðsla þeirra nam.
Þeir sem ákveða að styrkja málsóknina með valkvæðu framlagi sem nemur lægri fjárhæð en kr. 15.000,- munu ekki njóta framangreindra fríðinda. Ekki er heldur hægt að endurgreiða hluta af frjálsu framlagi þó mál vinnist.